Helgi og Ingi Þór þjálfa 2. flokk
Helgi Arnarson og Ingi Þór Þórisson hafa verið ráðnir til að þjálfa sameiginlegan 2. flokk Keflavíkur og Njarðvíkur. Helgi verður aðalþjálfari liðsins og Ingi Þór aðstoðarþjálfari. Keflavík og Njarðvík hafa undanfarið teflt fram sameiginlegu liði í 2. flokki karla og hefur það samstarf gengið vel. Því var ákveðið að halda samstarfinu áfram. Við bjóðum þá Helga og Inga Þór velkomna til starfa.
Á myndinni með fréttinni eru frá vinstri Arngrímur Guðmundsson formaður Knattspyrnudeildar Njarðvikur, Helgi Arnarson aðalþjálfari, Ingi Þór Þórisson aðstoðarþjálfari og Þorsteinn Magnússon formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur.