Fréttir

Knattspyrna | 21. mars 2007

Herrakvöld 23. mars

Herrakvöld Knattspyrndudeildar Keflavíkur verður haldið í Golfskálanum í Leiru föstudaginn 23. mars kl. 19:00.  Ræðumaður kvöldsins er Bjarni Harðarson bóksali á Selfoss og annar maður á lista Framsóknarkvöldsins í Suðurkjördæmi, mikill orðhákur og öðruvísi ræðumaður.  Veislustjóri er Kjartan Már Kjartansson sem á sínum tíma var kallaður „Veislustjórinn“ svo vinsæll var hann sem slíkur.  Auðunn nokkur Blöndal kemur þarna fram og er ekki vitað hvað hann verður með á boðstólnum en eitthvað verður það létt og fullt af háttvísi.  Þarna fer fram málverkauppboð og annað hefðbundið.  Dýrindis matur verður borinn fram en leikmenn Bikarmeistaranna 2006 munu alfarið annast alla þjónustu þetta kvöld.  Tekið verður á móti séróskum frá ákveðnum borðum um hvaða leikmaður þjónar þar til borðs.

Miðaverð er kr. 4.500.

Allar upplýsingar veita:
Einar H. Aðalbjörnsson, 861-2031
Oddur Sæmundsson, 894-2806    
Guðmundur Steinarsson, 899-4536
Karl Finnbogason, 421-5775
Jónas Guðni Sævarsson, 848-3982