Herrakvöld og Konukvöld 13. mars
Það er rétt hjá stuðningsmönnum Keflavíkur að taka frá föstudagskvöldið 13. mars en þá verða Herrakvöld og Konukvöld á vegum Knattspyrnudeildar. Herrakvöldið hefur verið haldið undanfarin ár og verið vel sótt og í fyrra var ákveðið að halda einnig Konukvöld. Herrakvöldið verður að þessu sinni í Oddfellowsalnum í Grófinni en Konukvöldið í KK-salnum við Vesturbraut. Við segjum nánar frá þessum skemmtunum þegar nær dregur.