Herrakvöld og Konukvöld 21. mars
Það er rétt hjá stuðningsmönnum Keflavíkur að taka frá föstudagskvöldið 21. mars en þá verða Herrakvöld og Konukvöld á vegum Knattspyrnudeildar. Herrakvöldið hefur verið haldið undanfarin ár og verið vel sótt en nú hefur verið ákveðið að halda einnig Konukvöld. Herrakvöldið verður í Oddfellowsalnum en Konukvöldið í félagsheimilinu við Sunnubraut. Við segjum nánar frá þessum skemmtunum þegar nær dregur.