Herrakvöldið 13. mars
Herrakvöld Knattspyrnudeildar verður haldið í Oddfellow-salnum í Grófinni föstudaginn 13. mars. Boðið verður upp á sjávarréttahlaðborð. Þorkell Máni verður veislustjóri, Gunnar á Völlum treður upp og Haukur í Diktu kíkir við. Happdrættið og uppboðið verða að sjálfsögðu á sínum stað. Húsið opnar kl. 19:00 og miðinn kostar 6.900 kr. Forsala miða er hjá bílasölu K. Steinarsson á Holtsgötu 52.