Fréttir

Knattspyrna | 26. febrúar 2010

Herrakvöldið á laugardag

Við minnum á að Herrakvöld Knattspyrnudeildar verður haldið í Oddfellowsalnum laugardaginn 27. febrúar.  Eins og venjulega verður boðið upp á gómsætan mat og glæsilega dagskrá.  Breiðbandið sér um veislustjórn, ræðumaður kvöldsins er Róbert Marshall og Örn Garðars sér um matinn af sinni alkunnu snilld.  Enn er hægt að tryggja sér miða sem kostar aðeins aðeins 5.000 kr. sem er sama verð og í fyrra.  Þeir sem ætla að mæta geta haft samband við Einar Aðalbjörns í síma 861-2031 eða á einara@simnet.is