Fréttir

Knattspyrna | 5. ágúst 2008

HK-leikurinn hjá Sportmönnum

Kæru Sportmenn,

Nú er loks komið að heimaleik aftur og andstæðingurinn að þessu sinni er HK.

Leikurinn hefst kl. 19:15 og við hittumst því í íþróttavallarhúsinu kl. 18:15  til upphitunar.  Gestur okkar verður Eyjólfur Ólafsson eftirlitsdómari og mun hann fjalla um knattspyrnudómgæslu og tengd mál.  Kristján þjálfari mætir að venju en að öðru leyti er orðið laust.

Minnum á kr. 500:- í baukinn fyrir veitingar.

Mætum vel og stundvíslega.

Kveðja,
stjórn Sportmanna.