HK/Víkingur - Keflavík á mánudag kl. 14:00
Fyrsti leikur Keflavíkur í 1. deild kvenna þetta sumarið er útileikur gegn HK/Víkingi en hann fer fram á Víkingsvelli mánudaginn 25. maí kl. 14:00. Dómari leiksins verður Gunnþór Steinar Jónsson og aðstoðardómarar þeir Arnar Már Elíasson og Marcin Maciej Mojzyszek.
Þó að þetta sé fyrsti leikurinn í Íslandsmótinu hefur liðið þegar leikið tvo leiki í sumar, báða í Borgunarbikarnum. Stelpurnar byrjuðu á að vinna Tindastól á heimavelli í fyrstu umferðinni en þar urðu lokatölur 4-3 í hörkuleik. Í næstu umferð tapaði liðið síðan gegn Grindavík á útivelli en þar gerðu heimastúlkur eina mark leiksins.