Fréttir

Knattspyrna | 16. maí 2006

Hópferð til Belfast

Farin verður hópferð á Evrópuleik Dungannon Swifts FC og Keflavíkur á N-Írlandi 24. júní.  Farið verður frá Reykjavík að morgni föstudagsins 23. júni og flogið til Belfast.  Gist verður á Hotel Seagoe í nágrenni Dungannon en það tekur 40 mínútur að keyra til Belfast frá hótelinu.  Innifalið í hópferðinni er flugið, gisting í 2ja manna herbergjum, rúta og miði á leikinn fyrir kr. 23.000, nú þegar hafa 12 manns bókað sæti.  Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að hafa samband við Ásmund "yfirbókara" sem fyrst í síma 421-5188.

 

 

 

 

 

Svona verður stemmingin á Írlandi!