Fréttir

Hörður áfram með Keflavík
Knattspyrna | 23. nóvember 2012

Hörður áfram með Keflavík

Hörður Sveinsson hefur skrifað undir samning við Keflavík og verður hjá félaginu til loka ársins 2014.  Hörður kom til liðs við okkur um mitt síðasta sumar frá Val og lék með Keflavík seinni hluta sumars.

Það þarf ekki að kynna Hörð fyrir stuðningsmönnum Keflavíkur enda Keflvíkingur í húð og hár.  Hann lék með yngri flokkum og lék fyrst með meistaraflokki árið 2001.  Árið 2005 gekk hann til liðs Silkeborg í Danmörku en kom aftur til Keflavíkur árið 2008.  Eftir keppnistímabilið 2010 gekk Hörður til liðs við Val en eins og áður sagði sneri hann aftur til Keflavíkur um mitt sumar.

Hörður hefur leikið 124 deildarleiki fyrir Keflavík og skorað í þeim 36 mörk.  Þá hefur hann leikið 14 bikarleiki og skorað eitt mark en það var einmitt í úrslitaleiknum þegar Keflavík varð bikarmeistari 2004.  Síðast en ekki síst á kappinn að baki sex Evrópuleiki og fimm mörk en Hörður skoraði fjögur mörk í sama leiknum gegn Etzella frá Lúxemborg árið 2005.