Hressileg fyrsta æfing hjá Willum og Þór
Fyrsta æfing hjá meistaraflokki karla fór fram í Reykjaneshöllinni í gærkvöldi. Willum Þór þjálfari og Þór Hinriks aðstoðarþjálfari voru mættir á sína fyrstu æfingu með strákunum. Hressileg æfing og strákarnir tóku vel á því. Æfingin átti að vera stutt og gaman en varð að hressilegri alvöruæfingu þar sem menn tóku virkilega á því. Í lok æfingar var spilað á tvö mörk og tempóið var flott hjá strákunum. Ekki var hægt að hætta þá enda allt í fullu fjöri og æfingin varð aðeins lengur en til stóð. Góð æfing og menn sáttir.
Eftir æfingu var fundur með leikmönnum þar sem var farið yfir ýmis góð mál og að lokum var svo fundur með liðsstjórninni.
Þór og Willum eldhressir.
(Mynd: Jón Örvar)