HS Orka býður Keflvíkingum á völlinn í kvöld
Nú er stórleikur framundan í Pepsi-deildinni, heimaleikur gegn Fjölni í 15. umferð deildarinnar. Leikurinn verður á Nettó-vellinum í Keflavík í kvöld kl. 19:15. Fyrir leikinn er Keflavík í neðsta sæti deildarinnar með fimm stig en Fjölnir er í 5. sætinu með 23 stig.
Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi leiksins og við treystum á að stuðningsmenn Keflavík fjölmenni og styðji strákana. Það verður dagskrá í félagsheimilinu frá kl. 18:00 en þar verður boðið upp á súpu og hljómsveit og stefnt að því að mynda góða stemningu á pöllunum. Það er Skólamatur sem býður upp á ljúffenga súpu. Þeir sem koma merktir Keflavík á völlinn fá frítt inn í boði HS Orku.