ÍA - Keflavík á fimmtudag kl. 18:00
Keflavík leikur gegn ÍA í Landsbankadeildinni fimmtudaginn 24. ágúst og verður flautað til leiks kl. 18:00. Leikurinn gæti ráðið miklu um framhaldið í baráttu liðanna; Keflavík er í harðri baráttu um 2. sæti Landsbankadeildarinnar en ÍA í botnbaráttunni. Nú þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir af mótinu er Keflavík í 2. sætinu með 22 stig en Skagamenn eru í 9. sæti með 14 stig. Staðan í deildinni er þó það jöfn að staða liðanna getur gjörbreyst með hverjum leik. Það er því nauðsynlegt að stuðningsmenn fjölmenni á völlinn og styðji liðið í baráttunni. Dómari leiksins verður hinn eini sanni Garðar Örn Hinriksson, aðstoðardómarar heiðursmennirnir Einar Sigurðsson og Áskell Þór Gíslason en eftirlitsmaður KSÍ er Guðmundur Sigurðsson.
Lið ÍA er það lið sem Keflavík hefur oftast mætt en jafnframt það lið sem við höfum átt í mestu erfiðleikum með. Liðin hafa leikið 82 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958. Keflavík hefur unnið 20 leiki en Skagamenn 51, jafntefli hefur orðið í 11 leikjanna. Markatalan er 93-154, liði ÍA í vil. Keflavík hefur mest unnið ÍA með þriggja marka mun, 4-1 árin 1966 og 1973. Stærsti sigur Skagamann á Keflavík var 9-0 árið 1959 en það er stærsta tap Keflavíkur í efstu deild frá upphafi. Mesti markaleikur liðanna var hins vegar 8-2 leikur árið 1995. Fjórir leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Akranesi; Þórarinn Kristjánsson hefur skorað fjögur mörk, Guðmundur Steinarsson hefur gert tvö og þeir Guðjón Antoníusson og Magnús Þorsteinsson hafa gert eitt mark í leikjum þessara liða.
Liðin hafa mæst 15 sinnum í bikarkeppni KSÍ. Þar hefur Keflavík unnið 6 leiki, ÍA alls 8 leiki en einum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 18-26 fyrir ÍA. Guðmundur Steinarsson hefur skorað tvö mörk gegn ÍA í bikarkeppni og Þórarinn Kristjánsson og Símun Samuelssen eitt hvor en þessi mörk komu öll í leik liðanna í 8 liða úrslitum VISA-bikarsins fyrr í sumar.
ÍA vann fyrri leik liðanna í sumar þegar liðin mættust í Keflavík. Lokatölurnar urðu 1-0 þar sem Ellert Jón Björnsosn skoraði eina mark leiksins. Liðin mættust einnig í bikarkeppninni og þá unnu okkar menn 4-3 sigur uppi á Skaga. Guðmundur Steinarsson skoraði tvö mörk í þeim leik og Þórarinn Kristjánsson og Símun Samuelssen eitt hvor en Arnar Gunnlaugsson skoraði tvö marka Skagamanna og Jón Vilhelm Ákason eitt.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með báðum liðum. Þar af eru þrír markverðir, Bjarni Sigurðsson, Ólafur Gottskálksson og Bjarki Freyr Guðmundsson sem nú leikur í marki Skagamanna. Það má því að segja að Keflavíkingar hafi gjarnan séð Skagamönnum fyrir markmönnum gegnum tíðina. Kristján Jóhannsson lék einnig með liði ÍA um tíma.
Úrslit í leikjum ÍA og Keflavíkur á Akranesi hafa orðið þessi undanfarin ár:
2005 |
ÍA - Keflavík |
1-2 | Guðjón Antoníusson Guðmundur Steinarsson | ||
2004 |
ÍA - Keflavík |
2-1 | Þórarinn Kristjánsson | ||
2002 |
ÍA - Keflavík |
5-2 | Adolf Sveinsson Hörður Sveinsson | ||
2001 |
ÍA - Keflavík |
2-0 | |||
2000 |
ÍA - Keflavík |
2-2 | Þórarinn Kristjánsson Magnús Þorsteinsson | ||
1999 |
ÍA - Keflavík |
2-2 | Gunnar Oddsson Þórarinn Kristjánsson | ||
1998 |
ÍA - Keflavík |
1-1 | Guðmundur Steinarsson | ||
1997 |
ÍA - Keflavík |
3-0 | |||
1996 |
ÍA - Keflavík |
5-0 | |||
1995 |
ÍA - Keflavík |
8-2 | Óli Þór Magnússon 2 |