ÍA - Keflavík á laugardag kl. 12:00
Laugardaginn 8. mars leika ÍA og Keflavík í Lengjubikar karla. Liðin leika að þessu sinni í Akraneshöllinni og hefja leik kl. 12:00. Dómari leiksins verður Garðar Örn Hinriksson og aðstoðardómarar þeir Haukur Erlingsson og Einar Sigurðsson. Fyrir leik dagsins hafa bæði lið þrjú stig í riðlinum en ÍA hefur lokið tveimur leikjum ef Keflavík hefur leikið þrjá leiki.
Næsti leikur Keflavíkur er gegn Breiðablik í Reykjaneshöllinni laugardaginn 15. mars kl. 16:00.