Fréttir

Knattspyrna | 3. júlí 2007

ÍA - Keflavík á miðvikudag kl. 20:00

ÍA og Keflavík mætast miðvikudaginn 4. júlí í 9. umferð Landsbankadeildarinnar og þar með lýkur fyrri umferðinni.  Leikurinn hefst kl. 20:00 á Akranesvelli og verður sýndur beint á Sýn.  Eftir síðustu umferðina hefur toppbaráttan heldur betur harðnað og ljóst að okkar menn leggja allt undir í þeirri baráttu.  Skagamenn byrjuðu mótið rólega en hafa verið að sækja í sig veðrið og m.a. unnið tvo síðustu leiki sína en Keflavíkurliðið hefur unnið þrjá síðustu leiki.  Keflavík er nú í 2. sæti deildarinnar með 17 stig en lið ÍA í því 4. með 11 stig.  Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar hans verða Frosti Viðar Gunnarsson og Þóroddur Hjaltalín Jr., varadómari er Ólafur Ragnarsson og Þorvarður Björnsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Keflavík og ÍA hafa mæst 81 sinni í efstu deild og hafa Skagamenn talsverða yfirburði í viðureignum liðanna.  Liðin mættust fyrst árið 1958 þegar við lékum fyrst í efstu deild.  Akranes vann þann leik 5-1 en Högni Gunnlaugsson skoraði mark Keflavíkur.  Alls hefur ÍA sigrað í 45 leikjum, 11 sinnum hefur orðið jafntefli en Keflavík hefur unnið 25 leiki.  Markatalan er 93-169, Skagamönnum í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 4-1 sigur árið 1973 en stærsta tapið var 0-9 tap árið 1959 en það er stærsta tap Keflavíkur í efstu deild.  Fjórir leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍA í efstu deild; Þórarinn Kristjánsson hefur skorað fjögur mörk, Guðmundur Steinarsson tvö og Guðjón Antoníusson og Magnús Þorsteinsson eitt mark hvor.

Liðin mættust tvisvar í næstefstu deild en það var árið 1991.  Skagamenn unnu báða leikina og markatalan var 1-6.

Keflavík og ÍA hafa leikið 13 leiki í bikarkeppninni, fyrst árið 1960 og síðast í fyrra.  Keflavík hefur unnið 5 leikjanna en ÍA 7 en einum lauk með jafntefli.  Markatalan er 16-19 fyrir ÍA.  Þrír leikmenn Keflavíkur hafa skorað bikarmark gegn ÍA; Guðmundur Steinarsson hefur skorað tvö og þeir Þórarinn Kristjánsson og Símun Samuelsen eitt hvor en þessi mörk komu að sjálfsögðu öll í mögnuðum bikarleik liðanna síðasta sumar.

Liðin léku þrisvar árið 2006.  Skagamenn unnu báða leikina í Landsbankadeildinni með því að skora eina mark leiksins.  Ellert Jón Björnsson skoraði sigurmarkið á Keflavíkurvelli en Hafþór Ægir Vilhjálmsson skoraði eina mark leiksins á Akranesi.  Liðin mættust síðan í 8 liða úrslitum bikarsins á Akranesi og þar vann Keflavík 4-3.  Guðmundur Steinarsson skoraði tvö markanna og Þórarinn Kristjánsson og Símun Samuelsen eitt hvor en Arnar Gunnlaugsson skoraði tvívegis fyrir ÍA og Jón Vilhelm Ákason eitt mark.

Í gegnum árin hafa nokkir leikmenn leikið með báðum þessum liðum og má þar nefna Bjarna Sigurðsson og Kristján Jóhannsson.  Bjarki Freyr Guðmundsson sem nú leikur með Keflavík stóð í marki Skagamann tvö síðustu leiktímabil.

Úrslit í leikjum ÍA og Keflavíkur á Akranesi hafa orðið þessi í efstu deild undanfarin ár:

2006

ÍA - Keflavík

1-0
2005

ÍA - Keflavík

1-2 Guðjón Antoníusson
Guðmundur Steinarsson
     2004    

ÍA - Keflavík

2-1   Þórarinn Kristjánsson
  2002

ÍA - Keflavík

5-2   Adolf Sveinsson
Hörður Sveinsson
  2001

ÍA - Keflavík

2-0  
  1999

ÍA - Keflavík

2-2   Gunnar Oddsson
Þórarinn Kristjánsson
  1998

ÍA - Keflavík

1-1   Guðmundur Steinarsson
  1997

ÍA - Keflavík

3-0  
  1996

ÍA - Keflavík

5-0  
1995

ÍA - Keflavík

8-2 Óli Þór Magnússon 2