Fréttir

Knattspyrna | 12. maí 2006

ÍBV - Keflavík á sunnudag

Keflavík og ÍBV mætast í 1. umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 14. maí.  Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og flautað verður til leiks kl. 16:00.  Bæði lið vilja að sjálfsögðu byrja mótið með látum og því má reikna með hörkuleik.  Þessi lið hafa marga hildi háð í gegnum árin og mörkin hafa yfirleitt ekki látið á sér standa.  Dómari leiksins verður  Garðar Örn Hinriksson, aðstoðardómarar þeir Gunnar Gylfason og Sigurður Óli Þórleifsson en eftirlitsmaður KSÍ er Ingi Jónsson.

Keflavík og ÍBV hafa leikið eina 55 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1968.  Eyjamenn haft betur og hafa unnið 24 leiki, okkar menn hafa sigrað 20 sinnum en 11 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 77-91, ÍBV í vil.  Stærstu sigrar Keflavíkur eru 4-0 leikir árin 1971 og 1993.  Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000.  Mesti markaleikur þessara liða er 5-3 sigur Keflavíkinga á heimavelli árið 1971.  Fjórir leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað þrívegis og þeir Þórarinn Kristjánsson, Ingvi Rafn Guðmundsson og Ólafur Jón Jónsson eitt mark hver.

Liðin hafa mæst 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999.  Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 5.  Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997.  Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn. 

Í fyrrasumar mættust liðin tvívegis í Landsbankadeildinni.  Keflavík vann fyrri leikinn úti í Eyjum.  Leiknum lauk 3-2 og skoruðu Hörður Sveinsson, Guðmundur Steinarsson og Ingvi Rafn Guðmundsson mörk Keflavíkur en Steingrímur Jóhannesson og Andri Ólafsson skoruðu fyrir ÍBV.  Seinni leiknum á Keflavíkurvelli lauk með 2-2 jafntefli.  Hörður Sveinsson og Ólafur Jón Jónsson skoruðu fyrir okkar lið en við skoruðum einnig mark fyrir Eyjamenn; Pétur Óskar Sigurðsson jafnaði svo leikinn fyrir gestina.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma.  Varnarjaxlarnir Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum sem og Zoran nokkur Ljubicic.  Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.

Úrslit í leikjum ÍBV og Keflavíkur í Eyjum hafa orðið þessi undanfarin ár:

     2005    

ÍBV - Keflavík 

2-3 Hörður Sveinsson
Guðmundur Steinarsson
Ingvi Rafn Guðmundsson
2004

ÍBV - Keflavík 

4-0
2002

ÍBV - Keflavík 

1-2 Þórarinn Kristjánsson
Guðmundur Steinarsson
2001

ÍBV - Keflavík 

1-0
2000

ÍBV - Keflavík 

5-0
1999

ÍBV - Keflavík 

1-0
1998

ÍBV - Keflavík 

1-0
1997

ÍBV - Keflavík 

5-1 Jóhann B. Guðmundsson
1996

ÍBV - Keflavík 

1-1 Jóhann B. Guðmundsson
1995

ÍBV - Keflavík 

3-2 Árni Vilhjálmsson
Ragnar Margeirsson