Fréttir

Knattspyrna | 20. ágúst 2011

ÍBV - Keflavík á sunnudag kl. 16:00

Sunnudaginn 21. ágúst leika ÍBV og Keflavík í 16. umferð Pepsi-deildarinnar.  Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og flautað verður til leiks kl. 16:00.  Fyrir leikinn eru okkar menn í 7.-8. sæti deildarinnar með 17 stig og veitir ekki af stigum til að koma sér upp töfluna.  Eyjamenn eru hins vegar í toppbaráttunnu og eru í 2. sætinu með 29 stig.  Dómari leiksins verður vinur okkar Kristinn Jakobsson og aðstoðardómarar hans þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson.  Þórður Georg Lárusson er svo eftirlitsmaður KSÍ. 

Keflavík og ÍBV hafa leikið 62 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1968.  Eyjamenn hafa þar aðeins betur og hafa unnið 26 leiki, okkar menn hafa sigrað 24 sinnum en 12 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 94-103, ÍBV í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur gegn ÍBV kom árið 2009 en honum lauk með 6-1 sigri á heimavelli.  Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000.  Mestu markaleikur þessara liða eru tveir heimasigrar hjá Keflavík, 5-3 sigur árið 1971 og 6-2 leikur árið 2006.  Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað sex mörk, Jóhann Birnir Guðmundsson tvö og þeir Arnór Ingvi Traustason, Magnús Þorsteinsson, Bojan Stefán Ljubicic, Magnús Þórir Matthíasson og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hver.

Liðin hafa mæst 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999.  Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 5.  Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997.  Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn. 

Fyrr í sumar mættust liðin í 5. umferð Pepsi-deildarinnar á Nettó-vellinum í Keflavík.  Þar unnu Eyjamenn 2-0 sigur þar sem Tryggvi Guðmundsson og Andri Ólafsson gerðu mörkin.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma.  Varnarjaxlarnir Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum sem og Zoran nokkur Ljubicic.  Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.

Úrslit í leikjum ÍBV og Keflavíkur í Eyjum hafa orðið þessi undanfarin ár:

2010 ÍBV - Keflavík 2-1 Magnús Þórir Matthíasson
2009

ÍBV - Keflavík 

2-2 Haukur Ingi Guðnason 2
2006

ÍBV - Keflavík 

2-1 Símun Samuelsen
     2005    

ÍBV - Keflavík 

2-3 Hörður Sveinsson
Guðmundur Steinarsson
Ingvi Rafn Guðmundsson
2004

ÍBV - Keflavík 

4-0
2002

ÍBV - Keflavík 

1-2 Þórarinn Kristjánsson
Guðmundur Steinarsson
2001

ÍBV - Keflavík 

1-0
2000

ÍBV - Keflavík 

5-0
1999

ÍBV - Keflavík 

1-0
1998

ÍBV - Keflavík 

1-0