Fréttir

Knattspyrna | 20. október 2006

Iceland Express-mót 6. flokks á laugardag

Þá styttist í 6. flokks mót Keflavíkur sem ber nafnið „Iceland Express mótið“.  Leikið verður í Reykjaneshöll laugardaginn 21. október.  Alls eru 40 lið skráð til leiks frá 8 félögum; Keflavík, Njarðvík, FH, Breiðablik, Leikni, Aftureldingu og Val R.  Gera má ráð fyrir um 400 keppendum auk þjálfara, liðstjóra og vonandi mikils fjölda foreldra/forráðamanna.  Það má því búast við miklu fjöri í Reykjaneshöllinni á laugardaginn.