Indriði Áki með Keflavík
Indriði Áki Þorláksson verður með Keflavík í sumar en hann kemur sem lánsmaður frá FH. Indriði Áki er sóknarmaður fæddur árið 1995 og verður því tvítugur í sumar. Hann gekk til liðs við FH í fyrra en lék áður með Val og Leikni R. Hann á að baki 27 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim átta mörk. Indriði hefur leikið tvo leiki með U-19 ára landsliðinu.
Við bjóðum Indriða velkominn í hópinn.