ÍR/BÍ/Bolungarvík - Keflavík á sunnudag kl. 13:00
Sunnudaginn 31. maí leika ÍR/BÍ/Bolungarvík og Keflavík í 1. deild kvenna. Leikur liðanna fer fram á Hertz-vellinum, heimavelli ÍR, og hefst kl. 13:00. Dómari leiksins verður Jóhannes Elíasson og aðstoðardómarar Snorri Mir og Eysteinn Hrafnkelsson. Bæði lið töpuðu sínum leikjum í fyrstu umferð deildarinnar, ÍR/BÍ/Bolungarvík á útivelli gegn Haukum og okkar stelpur töpuðu 5-1 gegn sterku liði HK/Víkings. Það var Marín Rún Guðmundsdóttir sem gerði markið í þeim leik.
Þess má geta að andstæðingar okkar í þessum leik sameinuðu krafta sína rétt áður en Íslandsmótið hófst. Eins og gefur að skilja var það gert vegna þess að félögin áttu í erfiðleikum með að halda úti liði í meistaraflokki kvenna. Fyrstu þrír heimaleikir liðsins verða á heimavelli ÍR-inga í Breiðholtinu en tveir síðustu á Torfnesvelli á Ísafirði.