Íslandsmeistararnir í heimsókn á laugardaginn
Stelpurnar leika æfingaleik gegn Stjörnunni í Reykjaneshöll laugardaginn 4. febrúar. Stjarnan er núverandi Íslandsmeistari og því um verðugt verkefni að ræða hjá stúlkunum. Leikurinn hefst kl. 14:15. Þeir sem ekki komast í Reykjaneshöllina geta fylgst með leiknum í beinni, smellið HÉR til að fara í beina útsendingu.