Fréttir

Knattspyrna | 31. janúar 2005

Íslandsmót stúlknaflokka

Íslandsmót innanhúss hjá 4. flokki kvenna, C-riðill,  fór fram í íþróttahúsinu við Sunnubraut á laugardag.  Skemmst er frá að segja að lið Fjölnis lenti í fyrsta sæti eftir úrslitaleik við Keflavík.  Heimastúlkur þurftu á sigri að halda þar sem að Fjölnir hafði tvö mörk á okkur, því miður tókst okkur ekki að klára þrátt fyrir að vera mun betri í leiknum.  Stelpurnar voru að gera góða hluti eins og stöllur sínar í 5. og 3. flokki þrátt fyrir að æfa ekkert innanhús, þ.e.a.s á parketgólfi.

Úrslit leikja í riðlakeppni hjá flokkunum í Íslandsmótinu innanhúss urðu þessi.

5. flokkur:
Spilað á Selfossi.

Keflavík - Selfoss: 1-0
Keflavík - Stjarnan: 1-3
FH mætti ekki til leiks.
- Keflavík í öðru sæti

4. flokkur:
Spilað í Keflavík.

Keflavík - Stjarnan: 3-0
Keflavík - Álftanes: 4-1
Keflaík - Fjölnir: 0-0
- Keflavík í öðru sæti

3. flokkur:
Spilað á Akranesi.

Keflavík - Skallagrímur: 3-0
Keflavík - KR: 5-3
Keflavík - ÍA: 6-2
- Keflavík í öðru sæti