Fréttir

Knattspyrna | 19. júlí 2009

Jafnt gegn FH í Krikanum

Það vantaði ekki rjómablíðuna þegar leikur FH og Keflavíkur hófst í 12. umferð Pepsi-deildarinnar í Krikanum í gær.  Fjörugum leik lauk með jafntefli 2-2 og það var Magnús Sverrir sem tryggði stigið með marki á lokamínútunni.  Keflavík átti að fá tvær vítaspyrnur í fyrri hálfleik en Jóhannes dómari var ekki á sama máli frekar en stundum áður.  Símun Samuelsen kom inn í liðið aftur eftir meiðsli og munar um minna og sama má segja um Nicolai Jörgensen.  Guðmundur Steinarsson spilaði ekki með Keflavík í gær þar sem vandræði eru með hans félagsskipti frá Vaduz en vonandi leysast þau mál í næstu viku.  Þá var virkilega ánægjulegt að sjá Hólmar Örn Rúnarsson vera kominn til baka og það sást greinilega á leik liðsins að fyrirliðinn var mættur á miðjuna. 

Leikurinn byrjaði fjörlega og FH-ingar voru sterkari til að byrja með.  Þeir áttu nokkur hálffæri og ansi margar hornspyrnur.  Lasse var góður í markinu og hirti þetta allt saman frekar auðveldlega.  En Keflavík vann sig inn í leikinn og strákarnir voru til alls líklegir.  Við áttum að fá tvær vítaspyrnur en allt kom fyrir ekki.  Guðjón Árni skoraði svo glæsilegt skallamark á 43. mínútu eftir frábæra sendingu Hauks Inga.  Staðan 0-1 Keflavík í hag í hálfleik og þetta leit ansi vel út.

Seinni hálfleikur byrjaði mjög fjörlega eins og sá fyrri.  FH-ingar voru sterkari ef eitthvað var en Keflavík varðist vel með Lasse sem besta mann.  FH jafnaði svo á 58. mínútu þegar fyrirliði þeirra, Davið Þór Viðarsson, skoraði með skalla eftir hornspyrnu.  Keflavík tók við sér um miðbik hálfleiksins og áttu ágætis kafla.  En það var svo hinn snjalli Atli Guðnason sem kom FH yfir með marki með skalla eftir hornspyrnu á 75. minútu.  Enn og aftur erum við að fá okkur mark úr föstu leik atriði.  Heimamenn fengu svo vítaspyrnu á 85. mínútu en Lasse varði vel frá Matthíasi Vilhjálmssyni.  Okkar menn færðu sig framar og sóttu af krafti.  Það var svo Magnús Sverrir sem jafnaði leikinn á 90. mínútu eftir sendingu frá Símun.  Sanngjörn úrslit en þessar vítaspyrnur sem við eigum að fá eru bara ekki að gera sig hjá Jóa dómara.  Annars var leikurinn í gær góður og bæði lið sóttu til sigurs en jafntefli niðurstaðan.  FH er nú með 34 stig eftir 13 leiki og Keflavík í 3.-5. sæti með 20 stig eftir 12 leiki. 

Næsti leikur Keflavíkur er gegn Fylki á fimmtudag á Sparisjóðsvellinum.
 
Keflavík: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni Antoníusson, Alen Sutej, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Nicolai Jörgensen, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Hólmar Örn Rúnarsson fyrirliði (Einar Orri Einarsson 85.), Jón Gunnar Eysteinsson, Brynjar Örn Guðmundsson (Jóhann Birnir Guðmundsson 60.), Haukur Ingi Guðnason (Magnús Þórir Matthíasson 55.), Símun Samuelsen.
Varamenn: Tómas Karl Kjartansson, Bessi Víðisson, Magnús Þór Magnússon, Þorsteinn Atli Georgsson.
Dómari:  Jóhannes Valgeirsson

Kristján þjálfari var í viðtali á fotbolti.net og birtum við það hér með leyfi þeirra

Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga var gríðarlega ánægður með 2-2 jafntefli á útivelli gegn FH-ingum í dag. Magnús Sverrir Þorsteinsson jafnaði metin fyrir Suðurnesjamenn á síðustu mínútu í venjulegum leiktíma.
,,Við verðum að líta á þetta sem gott unnið stig á mjög erfiðum útivelli. FH hefur unnið alla sína leiki hérna heima þannig að við hljótum að vera sáttir við það að hafa tekið stig hérna á útivelli. Við höfum verið gagnrýndir fyrir það að vera ekki nógu sterkir á útivelli en ég held að þetta sé styrkleikamerki," sagði Kristján við Fótbolta.net að leik loknum.

Kristján var heilt yfir ánægður með leik liðsins. Hann gat hinsvegar ekki valið neitt sem stóð upp úr.
,,Við erum sæmilega ánægðir með varnarleik liðsins. Hann var allt í lagi og sóknin var stundum góð. Ég á erfitt með að taka eitthvað eitt eða tvö atriði úr."

FH-ingar skoruðu bæði mörk sín eftir hornspyrnur frá Tryggva Guðmundssyni og segir Kristján lærisveina sína ekki nógu ákveðna í teignum.
,,Ég held að við séum bara ekki nógu ákveðnir í því að taka þá menn sem að við eigum að dekka. Við vitum hvernig FH tekur horn og hvernig þeir framkvæma hornin sín og við bara einhvernvegin vorum ekki í einvígunum inni í teignum. Þetta voru mörg horn sem að þeir fengu og hættuleg þannig að einhverntímann verður eitthvað undan að láta"

Lasse Jörgensen, sem var valinn markvörður umferða 1-11 hjá Fótbolta.net varði vítaspyrnu frá Matthíasi Vilhjálmssyni í stöðunni 2-1 fyrir FH og Kristján segir að Lasse hafi mikið æft að verja vítaspyrnur í sumar.
,,Það er gaman að þú skulir spurja að þessu með markmanninn af því að við höfum verið að vinna í því í sumar alveg statt og stöðugt að hann fari að verja vítaspyrnur. Við erum búnir að fá á okkur fimm eða sex núna og við höfum ekki verið nálægt því að verja neina. Við höfum verið að vinna í þessu og okkur tókst það. Hann hefur verið að hlusta á það sem við höfum verið að segja honum," bætti Kristján við.

Keflavík er eina liðið sem að hefur tekið stig af FH í fyrstu tólf umferðunum. Fyrst í fyrstu umferðinni þegar að Keflvíkingar fóru með 1-0 sigur af hólmi í Keflavík og nú náðu þeir 2-2 jafntefli.
,,Við höfum nálgast þessa leiki alla saman á mismunandi hátt. Við höfum spilað á mismunandi hátt gegn þeim. Ég held að þetta sé hvatning til annara liða að það sé hægt að taka stig af þeim."

Keflvíkingar eru í fimmta sæti deildarinnar með 20 stig rétt eins og Fylkir og Stjarnan sem eru með betri markatölu og eiga leik inni. Kristján segir markmiðið að halda sér í þessum efri pakka.
,,Auðvitað er okkar markmiðssetning sú að vera þarna í efri hlutanum og vonandi tekst það. Við verðum bara að vera tilbúnir í næsta leik, það þýðir ekkert að spila svona í dag og ná í stig. Það verður að fylgja því eftir," sagði Kristján Guðmundsson að lokum við Fótbolta.net.


Dramatík í lokin og Magnús Sverrir jafnar leikinn.