Jafnt gegn Stjörnunni
Keflavík og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í Lengjubikarnum en leikið var í Reykjaneshöllinni. Halldór Orri Björnsson kom gestunum yfir um miðjan fyrri hálfleik en okkar menn komust yfir með tveimur mörkum í byrjun þess seinni. Fyrst skoraði Jóhann Birnir Guðmundsson úr víti og Hörður Sveinsson bætti öðru marki við. Daníel Laxdal jafnaði svo fyrir Stjörnuna skömmu síðar og fleiri urðu mörkin ekki.
Eftir leikinn er Keflavík í 6.-7 sæti riðilsins með tvö stig eftir þrjá leiki. Næsti leikur er gegn Leikni í Reykjaneshöllinni laugardaginn 16. mars kl. 12:00.