Jafnt gegn Stjörnunni á heimavelli
Keflavík og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í 17. umferð Pepsi-deildarinnar en leikið var á Sparisjóðsvellinum í Keflavík. Keflavík komst tvisvar yfir í leiknum en fékk á sig tvö klaufaleg mörk sem kostuðu liðið sigurinn.
Það voru ekki liðnar nema tvær mínútur þegar Hörður skoraði stórglæsilegt skallamark. Stjörnumenn svöruðu strax með vafasömu marki á 9. mínútu þegar Arnar Már Björgvinsson skoraði og spurning með rangstöðu. Keflavík var mikið betra og fékk fín færi en náði ekki að skora og staðan í hálfleik 1-1.
Seinni hálfleikur byrjaði fjörlega og á 52. mínútu skoraði Hörður annað mark sitt með miklu harðfylgi. Stjarnan jafnaði svo öðru sinni um tíu mínútum fyrir leikslok þegar Halldór Orri Björnsson skoraði með fyrirgjöf sem rataði alla leið í markið. Ákaflega slysalegt mark. Haukur Ingi og Jóhann Birnir komu inn á undir lokin og hresstu vel upp á sóknarleikinn en allt kom fyrir ekki þrátt fyrir færin sem liðið fékk í leiknum. Sjötta jafnteflið staðreynd og Keflavík er í 6. sæti.
Næsti leikur er útileikur gegn Haukum á Vodefone-vellinum laugardaginn 28. ágúst kl. 16:00.
-
Leikurinn var 12. leikur Keflavíkur og Stjörnunnar í efstu deild. Þetta var fimmta jafnteflið í leikjum liðanna en Keflavík hefur unnið fjóra leiki og Stjarnan þrjá. Markatalan er 16-15 fyrir Keflavík.
-
Hörður Sveinsson er orðinn markahæsti leikmaður Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar en hann hefur nú skorað fjögur mörk. Hörður er kominn með 27 mörk fyrir félagið í efstu deild og er í 7.-8. sæti yfir markahæstu leikmenn liðsins frá upphafi ásamt Friðriki Ragnarssyni. Næst fyrir ofan er Jón Ólafur Jónsson með 31 mark og síðan er nokkuð langt í Þórarinn Kristjánsson með 48 mörk.
-
Keflavík hefur nú leikið fimm leiki á "nýja" Sparisjóðsvellinum og enn ekki sigrað. Þrjú jafntefli og tvö töp er afraksturinn og nú eru aðeins tvö tækifæri eftir í sumar til að vinna heimasigur í Keflavík, gegn Val og ÍBV.
Fótbolti.net
Keflvíkingar spiluðu skemmtilegan bolta í þessum leik og Hörður Sveinsson gerði vel í því að skora tvö mörk í þessum leik. Hins vegar stendur leikur þeirra Einars Orra og Hólmars Arnar uppúr en þeir voru mjög sterkir á miðjunni og Hólmar Örn virðist vera kominn í sitt gamla form.
Stjörnumenn geta hins vegar farið sáttir með eitt stig þrátt fyrir að hafa auðvitað getað stolið öllum stigunum í kvöld, Halldór Orri fór fyrir sínum mönnum og átti mjög góðan leik en hann hefur stimplað sig inn sem einn allra besti leikmaðurinn í Pepsi deildinni í sumar.
Fréttablaðið / Vísir
Hörður Sveinsson náði svo aftur forystunni eftir aðeins sjö mínútur í seinni hálfleik, þá kom fyrirgjöfin af vinstri kanti sem Hörður skaut úr en Bjarni varði. Hinsvegar fylgdi Hörður eftir af harðfylgi og náði að pota tánni í boltann og setja hann yfir línuna.
Stjarnan náði hinsvegar aftur að jafna og var þar að verki Halldór Orri Björnsson, hann átti fyrirgjöf miðaða á Garðar Jóhannesson sem var nýkominn inn af varamannabekk Stjörnunnar. Garðar hitti ekki boltann en það kom ekki að sök, boltinn lak afar hægt í stöngina og inn og verður þetta alfarið að skrifast á Lasse.
Lasse 4, Guðjón 5, Alen 5, Bjarni 6, Haraldur 6, Einar Orri 7, Hólmar Örn 6, Magnús Sverrir 6 (Jóhann Birnir -), Magnús Þórir 5 (Haukur Ingi -), Guðmundur 5, Hörður 7.
Morgunblaðið / Mbl.is
Liðin eru því nánast komin í baráttu um "ekki neitt", ef svo má segja, því þau þurfa engar áhyggjur að hafa af falli en eiga sáralitla möguleika á Evrópudeildarsæti nú þegar fimm umferðir eru eftir. Sigur í gær og heppilegri úrslit úr öðrum leikjum umferðarinnar hefðu snaraukið þá möguleika. Leikmenn og þjálfarar hafa þó vafalaust metnað til að enda sem efst í deildinni þótt ávinningurinn virðist lítill, og vitaskuld er enn von um að ávinningurinn verði mikill þótt veik sé.
M: Guðjón, Alen, Haraldur, Einar Orri, Guðmundur, Hörður.
Víkurfréttir /VF.is
Einhver hafði á orði að það tæki kannski svona langan tíma að innbyrða sigra vegna nafnsins. Sparisjóðurinn sem hefur verið sverð og skjöldur Suðurnesja fór á hausinn fyrr í sumar en ekki Njarðtak en Njarðvíkurvöllurinn ber það nafn og skilaði góðum sigrum í upphafi móts. En svo er þetta kannski bara venjulegt Keflavíkur-„syndrom“ að lenda í basli um mitt mót. Það hefur gerst ansi oft. Því miður.
Pepsi-deild karla, Sparisjóðsvöllurinn, 23. ágúst 2010
Keflavík 2 (Hörður Sveinsson 2., 52.)
Stjarnan 2 (Arnar Már Björgvinsson 9., Halldór Orri Björnsson 80.)
Keflavík: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni Antoníusson, Alen Sutej, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Magnús Sverrir Þorsteinsson (Jóhann Birnir Guðmundsson 85.), Einar Orri Einarsson, Hólmar Örn Rúnarsson, Magnús Þórir Matthíasson (Haukur Ingi Guðnason 85.), Guðmundur Steinarsson, Hörður Sveinsson
Varamenn: Ómar Jóhannsson, Magnús Þór Magnússon, Brynjar Örn Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Bojan Stefán Ljubicic.
Gult spjald: Jóhann Birnir Guðmundsson (90.).
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson.
Aðstoðardómarar: Áskell Þór Gíslason og Leiknir Ágústsson.
Eftirlitsdómari: Eyjólfur Ólafsson.
Áhorfendur: 970.
Myndir: Eygló Eyjólfsdóttir.
Hörður skorar fyrsta markið...

...við mikla ánægju viðstaddra.

Ósvikin gleði hjá okkar mönnum.