Fréttir

Knattspyrna | 23. febrúar 2004

Jafnt gegn Þrótti

Keflavík og Þróttur skildu jöfn í fyrsta leik liðanna í Deildarbikarnum í Reykjaneshöllinni í gærkvöldi.  Lokatölurnar urðu 2-2.  Þróttarar náðu forystunni í leiknum með marki Kára Ársælssonar en Hörður Sveinsson jafnaði með laglegu marki eftir að hafa fengið góða stungusendingu inn fyrir vörnina.  Stefán Gíslason bætti svo við öðru marki eftir hornspyrnu en Hjálmar Þórarinsson jafnaði metin rétt fyrir leikslok.  Okkar menn voru sterkari í leiknum og fengu þó nokkur færi, m.a. skallaði Haraldur í slá og Scott átti hörkuskot úr aukaspyrnu sem small í stönginni.  Gestirnir fengu vítaspyrnu en Magnús markvörður gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna.

Næsti leikur Keflavíkur í Deildarbikarnum er n.k. föstudag en þá leikur liðið gegn Val.  Sá leikur fer fram í Egilshöll og hefst kl. 18:30.