Fréttir

Knattspyrna | 7. maí 2012

Jafnt í fyrsta leik

Keflavík gerði jafntefli í fyrsta leik sínum í Pepsi-deildinni þetta árið þegar okkar menn heimsóttu Fylki í Árbæinn og gerðu 1-1 jafntefli.  Hilmar Geir Eiðsson kom Keflavík yfir á 31. mínútu leiksins en Ingimundur Níels Óskarsson jafnaði eftir um klukkutíma leik og þar við sat.  Keflavik var sterkara liðið í fyrri hálfleik en Fylkir í þeim seinni og úrslitin því nokkuð sanngjörn.

Næsti leikur er útileikur gegn Grindavík í Pepsi-deildinni fimmtudaginn 10. maí kl. 19:15.

  • Leikurinn var 29. leikur Keflavíkur og Fylkis í efstu deild.  Þetta var níunda jafntefli liðanna en Keflavík hefur unnið 11 leiki og Fylkir níu.  Markatalan er 36-41 fyrir Fylki.
           
  • Hilmar Geir Eiðsson gerði fyrsta mark sumarsins hjá Keflavík annað árið í röð.  Síðasta sumar skoraði hann eftir 33 mínútur gegn Stjörnunni og gegn Fylki skoraði hann á 31. mínútu.
     
  • Hilmar skoraði sjötta mark sitt fyrir Keflavík í efstu deild en þau hefur hann gert í 23 leikjum.
          
  • Grétar Atli Grétarsson og Gregor Mohar léku í fyrsta sinn með Keflavík í efstu deild.
      
  • Jóhann R. Benediktsson lék sinn fyrsta leik fyrir Keflavík í efstu deild frá árinu 2002.  Hann lék síðast með Keflavík þann 21. september það ár í lokaumferðinni gegn Grindavík.
      
  • Guðmundur Steinarsson lék sinn 223. leik fyrir Keflavík í efstu deild og bætti þar með enn við leikjamet sitt.  Við getum ekki lofað að við nefnum það eftir hvern leik að hann hafi bætt metið...
      
  • Fyrir leikinn gegn Fylki hafði Keflavík unnið fyrsta leik sinn í Íslandsmótinu síðustu fimm ár.  Síðasta tap í fyrsta leik var árið 2006 þegar liðið tapaði 1-2 í Eyjum.
     

Fótbolti.net
Ómar Jóhannsson markvörður Keflvíkinga var einn af betri mönnum vallarins í leik Fylkis og Keflavíkur í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla sumarið 2012, er liðin gerðu 1-1 jafntefli í Árbænum.

,,Við erum sáttir með stigið eins og seinni hálfleikurinn spilaðist, við vorum ánægðir með fyrri hálfleikinn hjá okkur, vorum að spila vel og skapa okkur færi og við vorum ákveðnir að halda fengnum hlut í hálfleik. Við ætluðum ekkert að bakka og fara slappa af en síðan þróast leikurinn þannig að þeir taka yfir og við missum móðinn," sagði Ómar og er þetta dagsatt hjá honum, svona þróaðist leikurinn en það var eins og allt annað Keflavíkur lið hafi mætt til leiks í seinni hálfleikinn.

Keflavík var spáð falli sumstaðar í spám fyrir tímabilið eða þá við fallsætið, Ómar segir að Keflvíkingar hlusti ekkert á þessar spár en hann er þó tilbúinn í slaginn, ef það verður nóg að gera hjá honum.

,,Vonandi verður lítið að gera, en ég verð alveg tilbúinn ef það verður nóg að gera. Ég er í fínu formi og mér gekk ágætlega í dag og ég sé ekkert annað en að mér eigi eftir að ganga vel í sumar," sagði kokhraustur Ómar Jóhannsson.

Fréttablaðið / Vísir
„Mér fannst fyrri hálfleikurinn mjög góður. Við stjórnuðum leiknum, skorum eitt mark og vorum sáttir með okkar frammistöðu. Við fengum þó marga möguleika til þess að skora fleiri mörk en gerðum það ekki, því miður," sagði Zoran

„Við byrjum ágætlega í seinni hálfleik. Fengum gott færi í byrjun hálfleiksins en svo duttum við niður. Við gáfum þeim auðvelt mark og eftir það duttum við alveg útúr leiknum. Það vantaði kannski einhverja reynslu á miðjuna til þess að klára þetta.

„Við hefðum vilja vinna leikinn en okkur tókst það ekki og vorum við heppnir að halda jafnteflinu í leikslok," sagði Zoran Daníel Ljubicic, þjálfari Keflavíkur í leikslok.

Ómar 8, Grétar Atli 6, Jóhann Ragnar 6, Gregor 6, Haraldur 6, Einar Orri 7, Arnór Ingvi 6, Frans 5 (Sigurbergur 6) , Jóhann Birnir 7, Hilmar Geir 7, Guðmundur 6 (Bojan -).

Morgunblaðið / Mbl.is
Keflavík er með marga reynslubolta en inn á milli eru ungir strákar sem þurfa tíma í sumar. Keflavík gæti því átt í erfiðleikum í byrjun. Liðið þarf þá að treysta á reynslubolta eins og Guðmund Steinarsson, sem náði sér reyndar ekki á strik í gær, Jóhann Birni Guðmundsson, Harald Frey Guðmundsson og Ómar Jóhannsson. Þeir eins og allt Keflavíkurliðið gáfu eftir í seinni hálfleik ef undan er skilinn Ómar, og þá var liðið ekki spennandi. Það vantaði, hjá þeim leikmönnum sem taldir voru upp hér fyrir ofan, að taka af skarið. Geri þeir það ekki í sumar verður það liðinu erfitt.
M: Ómar, Arnór Ingvi, Hilmar Geir, Jóhann Birnir.

433.is
Ómar 8, Grétar Atli 6, Jóhann Ragnar 6, Gregor 7, Haraldur 6, Einar Orri 6, Arnór Ingvi 7, Frans 6 (Sigurbergur 5) , Jóhann Birnir 7, Hilmar Geir 7, Guðmundur 5 (Bojan -).

 
Pepsi-deild karla, Fylkisvöllur, 6. maí 2012
Fylkir 1
(Ingimundur Níels Óskarsson 61.)
Keflavík 1 (Hilmar Geir Eiðsson 31.)

Keflavík: Ómar Jóhannsson, Grétar Atli Grétarsson, Jóhann R. Benediktsson, Gregor Mohar, Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði, Hilmar Geir Eiðsson, Einar Orri Einarsson, Arnór Ingvi Traustason, Frans Elvarsson (Sigurbergur Elísson 54.), Jóhann Birnir Guðmundsson, Guðmundur Steinarsson (Bojan Stefán Ljubicic 77.). 
Varamenn: Bergsteinn Magnússon, Viktor Smári Hafsteinsson, Magnús Þór Magnússon, Þorsteinn Þorsteinsson, Daníel Gylfason.
Gul spjöld: Frans Elvarsson (34.), Jóhann Birnir Guðmundsson (78.).

Dómari: Gunnar Jarl Jónsson.
Aðstoðardómarar: Frosti Viðar Gunnarsson og Andri Vigfússon.
Eftirlitsdómari: Sigurður Hannesson.
Áhorfendur: 1.076.

Myndir: Eygló Eyjólfsdóttir





Hilmar Geir kominn í færi...


...og þessi liggur í netinu!


Fyrsta marki sumarsins fagnað.