Jóhann Birnir áfram með Keflavík
Jóhann Birnir Guðmundsson hefur skrifað undir samning við Keflavík og gildir hann fram á haust. Það er því frágengið að Jóhann verður með Keflavík í sumar og ljóst að reynsla hans mun nýtast liðinu vel.
Jóhann Birnir er 38 ára og er úr Garðinum. Hann hóf ferilinn á heimaslóðum með Víði en hóf að leika með Keflavík árið 1994. Hann á að baki 168 leiki fyrir Keflavík í efstu deild og hefur skorað 41 mark. Alls hefur hann leikið 247 leiki fyrir félagið í öllum keppnum og var valinn leikmaður ársins hjá Keflavík árið 2012. Jóhann hefur einnig leikið sem atvinnumaður í Englandi, Noregi og Svíþjóð. Hann á að baki átta landsleiki auk leikja með yngri landsliðum.