Fréttir

Jóhann Birnir framlengir
Knattspyrna | 4. október 2013

Jóhann Birnir framlengir

Jóhann Birnir Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við Keflavík um eitt ár.  Jóhann er einn reynslumesti leikmaður Keflavíkurliðsins og á að baki 146 leiki í efstu deild og hefur skorað þar 38 mörk.  Hann hefur einnig leikið 20 bikarleiki og skorað sjö mörk auk átta Evrópuleikja þar sem eitt mark leit dagsins ljós.  Jóhann á að baki átta landsleiki og lék á sínum tíma sem atvinnumaður í Englandi, Noregi og Svíþjóð.

Það er ánægjulegt að Jóhann hafi ákveðið að halda áfram með liðinu enda var hann lykilmaður þar í sumar eins og undanfarin ár.