Fréttir

Jóhann Birnir og Eydís Ösp leikmenn ársins
Knattspyrna | 1. október 2012

Jóhann Birnir og Eydís Ösp leikmenn ársins

Jóhann Birnir Guðmundsson og Eydís Ösp Haraldsdóttir eru leikmenn ársins hjá meistaraflokkum karla og kvenna en það var tilkynnt á lokahófi Knattspyrnudeildar var haldið í félagsheimili Keflavíkur laugardaginn 29. september.  Arnór Ingvi Traustason og Kristrún Ýr Hólm voru valin efnilegust.  Fjölmargar viðurkenningar voru veittar á lokahófinu sem við segjum nánar frá síðar.

Myndin með fréttinni er frá Víkurfréttum.