Jóhann Birnir og Haukur Ingi taka við
Jóhann Birnir Guðmundsson og Haukur Ingi Guðnason hafa tekið við þjálfun meistaraflokks karla en þeir munu stjórna liðinu út tímabilið. Knattspyrnudeild bindur miklar vonir við að þeir muni snúa gengi liðsins til betri vegar. Knattspyrnudeild biðlar jafnframt til stuðningsmanna Keflavíkur að taka vel á móti þeim félögum og styðja liðið sem aldrei fyrr en með sameiginlegu átaki er allt hægt.
Á myndinni eru þeir Jóhann Birnir, Haukur Ingi og Gunnar Magnús Jónsson aðstoðarþjálfari.