Jóhann frá næstu vikur
Jóhann Birnir Guðmundsson leikur ekki með Keflavíkurliðinu næstu vikurnar en komið hefur í ljós að hann er kinnbeinsbrotinn. Jóhann meiddist í leiknum gegn Breiðabliki á dögunum þegar hann lenti í návígi við Guðmann Þórisson og fékk þungt olnbogaskot í andlitið. Jóhann leitaði til læknis nú í vikunni og þá kom í ljós að hann er tvíkinnbeinsbrotinn og verður frá í 4-6 vikur. Þetta eru enn ein meiðslin sem okkar lið þarf að takast á við en Jóhann hefur m.a. verið nokkuð frá vegna meiðsla undanfarið eins og svo margir aðrir leikmenn liðsins í sumar. Við óskum Jóhanni góðs bata og vonum að hann geti mætt aftur á knattspyrnuvöllinn sem fyrst.
Jóhann liggur í vellinum eftir að hafa fengið höggið gegn Blikum.
(Mynd: Jón Örvar)