Jóhann til Keflavíkur
Jóhann Ragnar Benediksson er genginn til liðs við Keflavík og hefur gert 2ja ára samning við félagið. Jóhann er 31 árs, vinstri fótar leikmaður sem getur leikið á miðjunni, á kantinum og sem bakvörður. Hann kemur frá Fjarðabyggð þar sem hann hefur leikið undanfarin ár en Jóhann var í okkar herbúðum á árunum 1999-2002 og lék þá alls 70 leiki með Keflavík og skoraði fimm mörk, þar af voru 43 leikir og eitt mark í efstu deild. Við bjóðum Jóhann velkominn og það eru mjög ánægjulegar fréttir að hann sé kominn aftur til Keflavíkur og ljóst að hann mun styrkja liðið okkar verulega.