Jóhannes Hleiðar verður aðstoðarþjálfari
Jóhannes Hleiðar Gíslason var í vikunni ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna. Hann verður því Heiðari Birni Torleifssyni þjálfara liðsins til aðstoðar fram á haust. Ráðningin er liður í því að efla kvennaknattspyrnuna hjá Keflavík. Þess má geta að Jóhannes er Keflvíkingur og lék með yngri flokkum félagsins og lék á sínum tíma einn leik með Keflavík í efstu deild.
Á myndinni að ofan er Jóhannes með Þorsteini Magnússyni, formanni Knattspyrnudeildar og fyrir neðan með Heiðari þjálfara. Fyrir neðan má svo sjá nokkra leikmenn meistaraflokks kvenna á æfingu.