Jólamót Hertz og Keflavíkur
Jólamót verður haldið í Reykjaneshöllinni laugardaginn 13. desember.
Mótið er fyrir pilta í 6. flokki (8 og 9 ára) og er haldið af knattspyrnudeild Keflavíkur. Þátttökulið í mótinu eru: Keflavík, Njarðvík, Reynir/Víðir, Grindavík, HK, Fjölnir, ÍA og Víkingur Reykjavík.
Þarna eru á ferð nokkur af sterkustu liðum landsins í þessum aldursflokki og því er von á skemmtilegum leikjum og góðum tilþrifum. Mótið hefst kl. 9:15 og því lýkur um kl. 14:20 með verðlaunaafhendingu og pizzuveislu. Kíkið við í Reykjaneshöllinni á laugardaginn og sjáið knattspyrnusnillinga framtíðarinnar kljást.