Fréttir

Knattspyrna | 8. september 2009

Jón Örvar er fimmtugur í dag

Í dag fagnar góður félagi okkar stórum áfanga því í dag eru 50 ár frá því að Jón Örvar Arason kom í heiminn.  Hann er því nákvæmlega einu ári eldri en Hugh Grant, gaman að því.  Þeir sem hafa fylgst með fótboltanum hér á Suðurnesjum ættu að kannast við Jón Örvar því hann hefur verið viðloðandi íþróttina nánast frá fæðingu.  Hann er fæddur og uppalinn í Sandgerði, kenndur við bæinn Klöpp sem er mitt á milli Sandgerðis og Garðs.  Í Sandgerði hóf hann sinn feril með Reyni en einnig hefur hann spilað meistarflokksleiki með Víði og svo auðvitað Keflavík.  Fyrsta meistarflokksleikinn spilaði hann árið 1975 og var því búinn að spila þá nokkra leikina þegar hann loks lagði skóna og hanskana á hilluna.  Hann er einn af fáum leikmönnum sem hafa orðið afar á sama tíma og þeir eru enn að spila en það gerðist hjá honum árið 1998 er hann var spilandi þjálfari hjá Reyni Sandgerði.  Hann varð fyrsti markmaðurinn til að spila í meistaraflokki ÍBK sem var ekki fæddur og uppalinn Keflvíkingur en það var árið 1980.  Þó var samt aldrei litið á það þannig að hann væri aðkomumaður.

Undanfarin ár hefur hann verið stór hluti af Keflavíkurliðinu en þar hefur hann verið liðsstjóri.  Þar fyrir utan hefur hann sinnt óteljandi verkefnum fyrir knattspyrnudeildina og óhætt að segja að hann sé einn af þessum ómissandi.  Fótbolti er hans líf og yndi og klúbbar sem hafa mann eins og hann innanborðs geta talið sig heppna.  Hann hefur verið ötull í því að ljósmynda hina og þessa viðburði og myndasafnið hans er orðið gríðarlega stórt og verðmætt mjög.  Það hefur verið heiður að vinna með honum undanfarin ár og vonandi verður framhald á því samstarfi.

Við óskum Jóni Örvari innilega til hamingju með daginn og vonum að hann verði honum ánægjulegur.

Með afmæliskveðju,
Stjórn Knattspyrnudeildar Keflavíkur
__________

Jón Örvar er búinn að vera stór hluti af fótboltanum nú í Keflavík í nokkuð mörg ár.  Mun stærri en margan grunar.  Hann er búinn að vera liðsstjóri liðsins undanfarin ár og sér um hluti fyrir leiki sem að við leikmenn verðum ekki varir við.  Fyrir utan það þá er hann búinn að taka fleiri þúsund ljósmyndir úr leikjum og starfi liðsins þessi ár og er það algjörlega ómetanlegt.  Jón Örvar til hamingju með daginn, það er heiður að hafa þig innan okkar raða og vonandi verður þú hjá okkur eins lengi og þú nennir.

Kveðja,
Gummi Steinars.
___________

Til hamingju með hálfrar aldar afmælið elsku besti Jón Örvar :).  Þú lítur alveg glimrandi vel út og gætir verið leikmaður þegar maður horfir á bekkinn.  Njóttu dagsins vel og svo sjáumst á sunnudaginn

Kveðja,
Hjördís Baldursdóttir
___________

Til hamingju með daginn Jón Örvar.
Fyrir knattspyrnudeildina er það ómetanlegt að eiga slíkan mann eins og Jón Örvar.  Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkar mikla starf, alltaf með myndavélina á lofti og er einnig liðsstjóri hjá meistaraflokki karla.  Síðan ég tók við sem formaður þá hef ég kynnst piltinum betur og þar fer mikill öðlingur og góður drengur sem öllum líkar vel við.  Ekki skemmir það að okkar skoðanir á góðum liðum liðum fara vel saman þar sem við erum einnig miklir Leeds menn.

Með afmæliskveðju,
Þorsteinn Magnússon
Formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur
_______________

Jón Örvar fimmtugur, því trúi ég vel !).  Jón hefur verið í teymi okkar sem næst hafa staðið Keflavíkurliðinu þau  fimm ár sem undirritaður hefur stjórnað liðinu og er nú titlaður forráðamaður liðsins.  Samvinna okkar Jóns hefur verið framúrskarandi góð í gegnum árin og höfum við gengið saman í gegnum súrt sem sætt þessi viðburðarríku ár okkar saman.  Maður eins og Jón Örvar er alger lykilmaður í hverju félagi því hann setur klúbbinn alltaf í fyrsta sæti, fer í nánast öll þau verkefni sem hann er beðinn um að fara í og ræður við og oftar en ekki miklu meira en það.  Athygli vakti í vetur að Jón sást bera bakpoka hvar sem hann fór og virtist ekkert vera á þeim buxunum að taka hann af sér sama hvað við ræddum málið. Það kom þó að því er nálgast tók vorið að Jón Örvar bað okkur um að hjálpa sér við að taka bakpokann af sér.  Við tókum Jón að sjálfsögðu á orðinu og renndum bakpokanum af með ánægju.  Aðdáunarvert er hversu  góðan  stuðning og aðstoð hann fær  frá fjölskyldu sinni í kringum fótboltann og vil ég þakka þeim öllum fyrir karlinn og óska þér Jón Örvar og fjölskyldu þinni til hamingju með daginn!

Kristján Guðmundsson
__________________

Sannir félagsmenn eru mikilvægir hverju félagi.  Jón Örvar er einn af Keflavíkurliðinu!  Hann er með allt sitt algjörlega á hreinu og ekki skemmir fyrir að konan hans er ekkert síðri á myndavélinni en hann:).  Svo er hann líka svo mikill Víðismaður í sér...
Kæri Jón Örvar, innilega til hamingju með hálfrar aldar afmælið þitt og vonandi áttu góðan dag með fjölskyldunni.

Kv.  Guðjón Árni.
_________________

Nonni minn, innilega til hamingju með 50 ára afmælið.  Þú þarft að keppa lengi við mig til þess að ná mínum aldri og til þess að verða eins hress og ég er þá þarftu að vera snöggur og duglegur að borða og þá sérstaklega eftirrétti ;).  Það hefur verið gaman að vinna með þér í gegnum árin, bæði í æfingaferðunum og Evrópuleikjunum.  Það er mjög notalegt og maður hefur engar áhyggjur þótt maður fái gul spjöld á bekknum, því að þú ert alltaf reiðubúinn til þess að taka þau á þig!  Ég hef þekkt í nokkuð mörg ár og get alveg sagt það með sanni að þú verður betri og betri með hverju ári sem líður.  Eina sem skyggir á, knattspyrnulega séð, að þú skulir ekki vera Arsenalmaður!!  En Leeds er ágætis lið líka en stenst því miður ekki samanburð við Arsenal og að sjálfsögðu Keflavík ;).  Ég vona Nonni minn að við eigum eftir að eiga margar góðar stundir saman á bekknum og að við eigum eftir að horfa á Keflavík vinna glæsta sigra í framtíðinni!
Njóttu dagsins og mundu að aldurinn gerir okkur bara myndalegri.

Kær kveðja, the kitman og þinn vinur,
Dói
__________________

Eðaldrengurinn Jón Örvar er orðinn fimmtugur.  Ég vil af því tilefni óska honum og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.  Við Jón Örvar höfum starfað saman hjá Keflavík í um 11 ár.  Það er frábært að vinna með Jóni og eru ófá verkin sem hann tekur að sér fyrir liðið og skiptir þá engu máli hversu stórt það verkefni er, hann leysir það með glans.  Í gegnum árin höfum við Jón ferðast mikið saman með liðinu og betri ferðafélaga er erfitt að finna.  Þar hefur Jón tekið að sér hin ýmsu störf eins og að vera aðstoðarmaður sjúkraþjálfara, fararstjóri, farið á tæknifundi, ljósmyndari og pistlahöfundur en hann hefur eitt mörgum klukkustundum í að senda pistla og myndir heim af ferðum liðsins um heiminn svo að fylgismenn liðsins geti fylgst sem best með liðinu.  Kæri vinur, við sendum ykkur okkar bestu kveðjur og njótið dagsins.

Falur Helgi Daðason og fjölskylda.


Liðsstjórn Keflavíkurliðsins á góðri stundu.  Jón auðvitað á toppnum.


Hápunkturinn?  Úrklippa úr Vísi eftir leik Keflavíkur og Reynis í 2. deild.
Leikurinn var í júlí 1981 þannig að við hljótum að vera búin að fyrirgefa Jóni þessa skráveifu.


Úrklippa úr Mogganum.  Okkar maður í góðum félagsskap...


Þetta er þá líklega tíu ára gamalt...


Gamli maðurinn í Reynisliðinu (Smellið á greinina fyrir stærri útgáfu).


Og enn að, nú aðalmaðurinn á Pollamótinu.