Fréttir

Jonas Sandqvist til Keflavíkur
Knattspyrna | 3. mars 2014

Jonas Sandqvist til Keflavíkur

Markvörðurinn Jonas Sandqvist er genginn til liðs við Keflavík.  Hann var fenginn til félagsins eftir að í ljós kom að Ómar Jóhannsson mun ekki leika með liðinu á komandi keppnistímabili vegna meiðsla.

Jonas er 32 ára gamall og hefur komið víða við á sínum ferli.  Hann hefur leikið með Lunds BK, Landskrona BoIS, Malmö FF, Atromitos, Aalesunds FK og Örebro SK.  Jonas lék á sínum tíma einn A-landsleik fyrir Svíþjóð og einn U-21 árs landsleik.

Við bjóðum Jonas velkominn til Keflavíkur.