Keflavík - Afturelding á laugardag kl. 14:00
Laugardaginn 15. febrúar er komið að fyrsta leiknum í Lengjubikarnum þetta árið en þá kemur Afturelding í heimsókn í Reykjaneshöllina kl. 14:00. Dómari leiksins verður Jan Eric Jessen og aðstoðardómarar hans þeir Skúli Freyr Brynjólfsson og Ægir Magnússon.
Keflavík og Afturelding leika í riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins en önnur lið í riðlinum eru BÍ/Bolungarvík, Breiðablik, Fram, Grindavík, ÍA og KR. Leikið er í þremur riðlum í A-deild keppninnar og komast tvö efstu liðin úr hverjum riðli í úrslit ásamt tveimur liðum sem lenda í 3.sæti.