Fréttir

Knattspyrna | 20. maí 2011

Keflavík - Álftanes á laugardag kl. 14:00

Þá er keppni í 1. deild kvenna að hefjast og í fyrsta leik sínum tapa okkar stúlkur á móti liði Álftaness.  Liðin leika á Nettó-vellinum laugardaginn 21. maí kl. 14:00.  Dómari leiksins verður Ægir Magnússon og aðstoðardómarar þeir Sigurður Smári Hansson og Tómas Pálmason.

Liðinu okkar hefur gengið vel á undirbúningstímabilinu.  Stelpurnar léku m.a. til úrslita í C-deild Lengjubikarsins en töpuðu naumlega gegn Selfossi.  Liðið er því til alls líklegt í sumar enda er stefnan sett á að vinna sæti í efstu deild á næstu leiktíð.

Við hvetjum stuðningsmenn Keflavíkur til að mæta á Nettó-völlinn og styðja liðið.  Það verða reyndar mörg tækifæri til þess á næstunni en fimm fyrstu leikir Keflavíkur á tímabílinu verða á heimavelli.  Næsti leikur verður gegn ÍR föstudaginn 27., svo er komið að bikarleik gegn Fjölni 31. maí og síðan eru deildarleikir gegn Hetti 4. júní og Fjarðabyggð/Leikni þann 10. júní.