Fréttir

Keflavík - Augnablik á fimmtudag kl. 20:00
Knattspyrna | 18. júní 2015

Keflavík - Augnablik á fimmtudag kl. 20:00

Fimmtudaginn 18. júní leika Keflavík og Augnablik í 1. deild kvenna.   Leikur liðanna fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og þar verður flautað til leiks kl. 20:00.  Dómari leiksins verður Sigurður Schram og aðstoðardómarar þeir Hallgrímur Dan Daníelsson og Thanh Tung Vú.

Keflavík hefur enn ekki náð í stig í deildinni í sumar að loknum þremur leikjum en Augnablik er með sex stig úr fjórum leikjum.  Okkar stelpur töpuðu 3-2 gegn Haukum í hörkuleik í síðustu umferðinni.  Margrét Hulda Þorsteinsdóttir og Marín Rún Guðmundsdóttir gerðu mörkin í þeim leik.

Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar.