Fréttir

Keflavík - BÍ/Bolungarvík á laugardag kl. 14:00
Knattspyrna | 20. júlí 2012

Keflavík - BÍ/Bolungarvík á laugardag kl. 14:00

Laugardaginn 21. júlí leika Keflavík og BÍ/Bolungarvík í 1. deild kvenna.  Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst kl. 14:00.  Dómari leiksins verður Snorri Mir og aðstoðardómarar þeir Ægir Magnússon og Njáll Trausti Gíslason.

Liðin léku fyrr í sumar í Bolungarvík og þá unnu heimastúlkur 3-1.  Dagmar Þráinsdóttir gerði mark Keflavíkur í þeim leik en Talita B. Pereira gerði öll mörk heimaliðsins.  Það var fyrsti leikur Keflavíkur gegn BÍ/Bolungarvík á Íslandsmótinu en sameiginlegt lið Ísfirðinga og Bolvíkinga mætir nú að að nýju til leiks eftir fjögurra ára hlé.  Keflavík og BÍ léku reyndar saman í B-deildinni árið 1992 og þá vann BÍ sinn heimaleik 4-0 en leiknum í Keflavík lauk með 1-1 jafntefli.