Fréttir

Knattspyrna | 14. september 2011

Keflavík - Breiðablik á fimmtudag kl. 17:15

Fimmtudaginn 15. september koma Íslandsmeistarar Breiðabliks í heimsókn og mæta Keflavík í 19. umferð Pepsi-deildarinnar.  Leikurinn fer fram á Nettó-vellinum og hefst kl. 17:15.  Fyrir umferðina eru liðin jöfn í 7.-8. sæti deildarinnar með 20 stig en Keflavík á reyndar leik til góða.  Það er því ljóst að það verður hörkuleikur og mikil barátta á Nettó-vellinum og engin ástæða til að láta sig vanta.  Dómari leiksins verður enginn annar er Gunnar Jarl Jónsson, aðstoðardómarar hans verða Sigurður Óli Þórleifsson og Leiknir Ágústsson en eftirlitsmaður KSÍ er Eyjólfur Ólafsson.

Keflavík og Breiðablik hafa leikið 45 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1971.  Keflavík hefur unnið 21 leik og Breiðablik 14 en tíu leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 80-64 fyrir Keflavík.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 5-0 sigur árið 2006 en Breiðablik vann 3-0 sigur á heimavelli árið 1982 og í Keflavík í fyrra.  Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Blikum í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fimm mörk og þeir Hilmar Geir Eiðsson, Magnús Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson og Guðjón Árni Antoníusson hafa skorað eitt mark hver. 

Keflavík og Breiðablik hafa leikið sjö leiki í næstefstu deild, fyrst árið 1957 og síðast árið 2003.  Keflavík vann sex leikjanna en Breiðablik einn og markatalan er 25-6 fyrir Keflavík.  Magnús Þorsteinsson skoraði þrjú mörk gegn Breiðabliki í B-deildinni árið 2003. 

Liðin hafa leikið sjö leiki í bikarkeppni KSÍ, þann fyrsta árið 1961 og þann síðasta árið 2009.  Breiðablik hefur unnið fimm leiki en Keflavík tvo en markatalan er þó 17-12 fyrir Keflavík í bikarleikjum liðanna.  Guðjón Árni Antoníusson hefur skorað tvö bikarmörk gegn Blikum og Guðmundur Steinarsson eitt.

Fyrr í sumar mættust liðin í Pepsi-deildinni og þá unnu Blikar 2-1 á Kópavogsvelli.  Hilmar Geir Eiðsson gerði mark Keflavíkur en Kristinn Steindórsson gerði bæði mörk Breiðabliks.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með báðum þessum liðum og má þar nefna Kristján Brooks, Kjartan Einarsson, Helga Bentsson og Sigurjón Kristjánsson.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og Breiðabliks í efstu deild í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:

2010 Keflavík - Breiðablik 0-2
2009 Keflavík - Breiðablik 0-3
2008 Keflavík - Breiðablik 3-1 Patrik Redo 2
Guðmundur Steinarsson
2007 Keflavík - Breiðablik 0-3
2006 

Keflavík - Breiðablik

5-0 Stefán Örn Arnarson 2
Baldur Sigurðsson 2
Símun Samuelsen
2001

Keflavík - Breiðablik

2-1 Þórarinn Kristjánsson
Haukur Ingi Guðnason
2000

Keflavík - Breiðablik

1-0 Guðmundur Steinarsson
1999

Keflavík - Breiðablik

2-1 Kristján Brooks 2
1996

Keflavík - Breiðablik

1-1 Haukur Ingi Guðnason
1995

Keflavík - Breiðablik

1-1 Róbert Sigurðsson

 


Hilmar Geir skorar gegn Blikum á Kópavogsvellinum en það dugði ekki til.