Keflavík - Breiðablik á föstudag kl. 19:15
Keflavík og Breiðablik leika í Pepsi-deild kvenna föstudaginn 22. maí. Leikurinn verður á Sparisjóðsvellinum í Keflavík og hefst kl. 19:15. Stelpurnar okkar hafa átt erfitt uppdráttar í upphafi mótsins enda með ungt og óreynt lið. Það veitir því ekki af stuðningi og við hvetjum fólk til að mæta á völlinn og hvetja stelpurnar til dáða. Það eru RH Innréttingar sem bjóða upp á þennan leik og er aðgangur því ókeypis.