Keflavík - Breiðablik á laugardag kl. 10:00
Fyrsta mót ársins hefst um helgina þegar okkar menn fá Blika í heimsókn í Fótbolti-.net-mótinu. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni á laugardaginn kl. 10:00. Dómari leiksins verður enginn annar en Kristinn Jakobsson og aðstoðardómarar þau Rúna Kristín Stefánsdóttir og Bryngeir Valdimarsson. Við hvetjum stuðningsmenn að sjálfsögðu til að mæta og fylgjast með okkar liði.
Keflavík leikur í A-riðli mótsins ásamt Breiðablik, FH og Grindavík. Efsta liðið í riðlinum leikur síðan til úrslita í mótinu við efsta liðið í B-riðlinum og önnur lið leika um sæti.
Aðrir leikir Keflavíkur í riðlinum eru gegn FH laugardaginn 18. janúar og gegn Grindavík laugardaginn 25.