Keflavík - Breiðablik á laugardag kl. 16:00
Laugardaginn 15. mars leika Keflavík og Breiðablik í Lengjubikar karla. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 16:00. Dómari leiksins verður Örvar Sær Gíslason og aðstoðardómarar þeir Haukur Erlingsson og Viðar Helgason. Fyrir leikinn eru bæði liðin með sjö stig í riðlinum en Breiðablik hefur leikið þrjá leiki en Keflavík fjóra.
Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á SportTV.is.
Næsti leikur Keflavíkur er svo gegn Grindavík í Reykjaneshöllinni fimmtudaginn 20. mars kl. 18:40.