Keflavík - Breiðablik á miðvikudag kl. 19:00
Keflavík og Breiðablik leika í 8 liða úrslitum Lengjubikars karla miðvikudaginn 18. apríl. Leikurinn verður í Reykjaneshöllinni og hefst kl. 19:00. Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar hans þeir Andri Vigfússon og Ívar Orri Kristjánsson og eftirlitsmaður KSÍ er Eiríkur Helgason.
Keflavík vann sinn riðil í riðlakeppninni en Blikar urðu í 3. sæti í sínum riðli. Liðið sem sigrar í þessum leik mætir FH eða KR í undanúrslitum. Undanúrslitaleikirnir fara fram mánudaginn 23. apríl.