Keflavík - Breiðablik á sunnudag kl. 16:00
Nú styttist í lok Pepsi-deildarinnar og komið að síðasta heimaleik okkar þetta sumarið. Hann verður sunnudaginn 23. september og andstæðingurinn er Breiðablik. Leikurinn verður á Nettó-vellinum og hefst kl. 16.00. Fyrir leikinn er Keflavík í 7.-8. sæti deildarinnar með 27 stig en Blikar eru í 5. sæti með 30 stig og eru því enn í baráttu um Evrópusæti. Dómari leiksins verður Guðmundur Ársæll Guðmundsson, aðstoðardómarar hans verða Smári Stefánsson og Haukur Erlingsson en eftirlitsmaður KSÍ er Ingi Jónsson.
Keflavík og Breiðablik hafa leikið 47 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1971. Keflavík hefur unnið 22 leik og Breiðablik 14 en ellefu leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 85-65 fyrir Keflavík. Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 5-0 sigur árið 2006 en Breiðablik hefur þrisvar unnið 3-0. Fimm leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Blikum í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað sex mörk, Jóhann B. Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson tvö og Sigurbergur Elísson og Hilmar Geir Eiðsson hafa skorað eitt mark hvor.
Keflavík og Breiðablik hafa leikið sjö leiki í næstefstu deild, fyrst árið 1957 og síðast árið 2003. Keflavík vann sex leikjanna en Breiðablik einn og markatalan er 25-6 fyrir Keflavík. Magnús Þorsteinsson skoraði þrjú mörk gegn Breiðabliki í B-deildinni árið 2003 og Hörður Sveinsson eitt.
Liðin hafa leikið sjö leiki í bikarkeppni KSÍ, þann fyrsta árið 1961 og þann síðasta árið 2009. Breiðablik hefur unnið fimm leiki en Keflavík tvo en markatalan er þó 17-12 fyrir Keflavík í bikarleikjum liðanna. Guðmundur Steinarsson hefur skorað eitt bikarmark gegn Blikum.
Keflavík vann fyrri leik liðanna sem fór fram á Kópavogsvelli. Lokatölur urðu 4-0 þar sem Sigurbergur Elísson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Guðmundur Steinarsson og Magnús Sverrir Þorsteinsson gerðu mörkin.
Nokkrir leikmenn hafa leikið með báðum þessum liðum og má þar nefna Kristján Brooks, Kjartan Einarsson, Helga Bentsson og Sigurjón Kristjánsson.
Úrslit í leikjum Keflavíkur og Breiðabliks í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:
2011 | Keflavík - Breiðablik | 1-1 | Jóhann Birnir Guðmundsson |
2010 | Keflavík - Breiðablik | 0-2 | |
2009 | Keflavík - Breiðablik | 0-3 | |
2008 | Keflavík - Breiðablik | 3-1 |
Patrik Redo 2 Guðmundur Steinarsson |
2007 | Keflavík - Breiðablik | 0-3 | |
2006 | Keflavík - Breiðablik | 5-0 |
Stefán Örn Arnarson 2 Baldur Sigurðsson 2 Símun Samuelsen |
2001 | Keflavík - Breiðablik | 2-1 |
Þórarinn Kristjánsson Haukur Ingi Guðnason |
2000 | Keflavík - Breiðablik | 1-0 | Guðmundur Steinarsson |
1999 | Keflavík - Breiðablik | 2-1 | Kristján Brooks 2 |
1996 | Keflavík - Breiðablik | 1-1 | Haukur Ingi Guðnason |