Fréttir

Knattspyrna | 8. ágúst 2009

Keflavík - Breiðablik á sunnudag kl. 19:15

Sunnudaginn 9. ágúst koma Blikar í heimsókn í 16. umferð Pepsi-deildarinnar.  Leikurinn fer fram á Sparisjóðsvellinum og hefst kl. 19:15.  Fyrir umferðina er Keflavík í 4. sæti deildarinnar með 24 stig en Breiðablik er í 7.-8. sæti með 18 stig.  Blikar unnu síðasta leik eftir þrjá tapleiki þar á undan en okkar menn steinlágu í síðustu umferð eftir að hafa verið ósigraðir í sjö leikjum þar á undan.  Okkar menn vilja að sjálfsögðu drífa sig aftur á beinu brautina eftir slakan leik en Blikar ætla sér örugglega að fylgja eftir góðum sigri.  Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar hans verða Áskell Þór Gíslason og Leiknir Ágústsson en eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.

Keflavík og Breiðablik hafa leikið 41 leik í efstu deild, þann fyrsta árið 1971.  Keflavík hefur unnið 20 leiki og Breiðablik 11 en tíu leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 78-57 fyrir Keflavík.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 5-0 sigur árið 2006 en Breiðablik vann 3-0 sigur á heimavelli árið 1982 og í Keflavík árið 2007.  Mesti markaleikur liðanna er 4-4 jafnteflið á Kópavogsvelli fyrr í sumar.  Níu leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Blikum í efstu deild; Guðmundur Steinarsson hefur skorað fimm mörk, Haukur Ingi Guðnason hefur skorað fjögur, Stefán Örn Arnarson tvö og þeir Magnús Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Símun Samúelsen, Hólmar Örn Rúnarsson og Guðjón Árni Antoníusson hafa skorað eitt mark hver. 

Keflavík og Breiðablik hafa leikið sjö leiki í næstefstu deild, fyrst árið 1957 og síðast árið 2003.  Keflavík vann sex leikjanna en Breiðablik einn og markatalan er 25-6 fyrir Keflavík.  Magnús Þorsteinsson skoraði þrjú mörk gegn Breiðabliki í B-deildinni árið 2003 og Hörður Sveinsson eitt.

Liðin hafa leikið sex leiki í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1961 og þann síðasta í fyrra.  Breiðablik hefur unnið fjóra leiki en Keflavík tvo en markatalan er þó 15-9 fyrir Keflavík í bikarleikjum liðanna.  Guðmundur Steinarsson  og Guðjón Árni Antoníusson hafa skorað eitt bikarmark hvor gegn Blikum.

Fyrr í sumar mættust liðin í Landsbankadeildinni á heimavelli Blika í Kópavogi og lauk þeim leik með 4-4 jafntefli.  Haukur Baldvinsson soraði tvö mörk fyrir Breiðablik og Alfreð Finnbogason og Kristinn Steindórsson eitt mark hvor.  Haukur Ingi Guðnason, Magnús Þorsteinsson, Magnús Þórir Matthíasson og Bjarni Hólm Aðalsteinsson skoruðu fyrir Keflavík í þessum ótrúlega markaleik.

Nokkrir leikmenn hafa leikið með báðum þessum liðum og má þar nefna Kristján Brooks, Kjartan Einarsson, Helga Bentsson og Sigurjón Kristjánsson.

Úrslit í leikjum Keflavíkur og Breiðabliks í efstu deild í Keflavík hafa orðið þessi undanfarin ár:

2008 Keflavík - Breiðablik 3-1 Patrik Redo 2
Guðmundur Steinarsson
2007 Keflavík - Breiðablik 0-3
2006 

Keflavík - Breiðablik

5-0 Stefán Örn Arnarson 2
Baldur Sigurðsson 2
Símun Samuelsen
2001

Keflavík - Breiðablik

2-1 Þórarinn Kristjánsson
Haukur Ingi Guðnason
2000

Keflavík - Breiðablik

1-0 Guðmundur Steinarsson
1999

Keflavík - Breiðablik

2-1 Kristján Brooks 2
1996

Keflavík - Breiðablik

1-1 Haukur Ingi Guðnason
1995

Keflavík - Breiðablik

1-1 Róbert Sigurðsson
1994

Keflavík - Breiðablik

4-0 Óli Þór Magnússon 3
Ragnar Margeirsson
1986

Keflavík - Breiðablik

1-0 Skúli Rósantsson