Fréttir

Keflavík - Breiðablik í úrslitum Fótbolta.net-mótsins
Knattspyrna | 29. janúar 2013

Keflavík - Breiðablik í úrslitum Fótbolta.net-mótsins

Það verða Keflavík og Breiðablik sem leika til úrslita í Fótbolta.net-mótinu laugardaginn 2. febrúar.  Úrslitaleikurinn verður í Kórnum í Kópavogi og hefst kl. 13:30. Sama dag verður leikið um sæti í mótinu.  Þess má geta að ef leiknum lýkur með jafntefli verður farið beint í vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit.