Keflavík - FH á föstudag kl. 19:00
Föstudaginn 8. apríl leika Keflavík og FH í 8 liða úrslitum í Lengjubikarnum. Leikurinn verðúr í Reykjaneshöllinni og þar verður flautað til leiks kl. 19:00. Dómari leiksins verður Pétur Guðmundsson, aðstoðardómarar þeir Birkir Sigurðarson og Bjarki Óskarsson og Eyjólfur Ólafsson er svo eftirlitsmaður KSÍ.
Keflavík tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum með því að verða í 2. sæti í sinum riðli en FH-ingar unnu sinn riðil. Liðið sem sigrar mætir KR eða Fylki í undanúrslitunum sem verða 15. apríl.
Svo er bara að mæta á þennan stórleik.